Laga þessa síðu

Grunngildi Pírata

Grunngildi stjórnmálahreyfingarinnar Pírata birtast í grunnstefnunni sem samanstendur af sex stuttum köflum.

Til stefnumála sem lögð eru fram til samþykktar innan Pírata er gerð sú krafa að þau standist viðmið grunnstefnunnar.

Lesin og teiknuð

Á táknmáli

Ítarefni

Rituð

1. Gagnrýnin hugsun og upplýst stefna

1.1 Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.

1.2 Í þessu felst að Píratar móti stefnu sína í ljósi gagna og þekkingar sem er aflað óháð því hvort tillaga virðist í fyrstu æskileg eða ekki. Afstaða Pírata til hugmynda er óháð því hverjir talsmenn hennar eru.

1.3 Fyrri ákvarðanir Pírata þurfa alltaf að geta sætt endurskoðun.

1.4 Réttur einstaklinga til að leita þess að verða upplýstir skal aldrei skertur.

2. Borgararéttindi

2.1 Píratar beita sér fyrir eflingu og verndun borgararéttinda.

2.2 Útvíkkun borgararéttinda skal miða að styrkingu annarra réttinda.

2.3 Standa þarf vörð um núverandi réttindi og gæta þess að þau séu ekki skert.

2.4 Píratar telja að borgararéttindi tilheyri einstaklingum, og að réttur hvers og eins sé jafn sterkur.

3. Friðhelgi einkalífsins

3.1 Friðhelgi einkalífsins snýst um vernd hinna valdaminni frá misbeitingu hinna valdameiri.

3.2 Píratar telja að allir einstaklingar eigi rétt á friðhelgi í sínu einkalífi.

3.3 Til friðhelgi telst réttur til leyndar og nafnleysis, og sjálfsákvörðunarréttur.

3.4 Leynd á aldrei að ná lengra en þörf er til að vernda einstaklinginn, og aldrei svo langt að það hafi áhrif á aðra einstaklinga.

3.5 Nafnleysi hefur ekki þann tilgang að skjóta einstaklingi undan ábyrgð.

4. Gagnsæi og ábyrgð

4.1 Gagnsæi snýst um að opna hina valdameiri gagnvart eftirliti hinna valdaminni.

4.2 Píratar telja gagnsæi eiga mikilvægan þátt í að almenningur sé upplýstur og þar af leiðandi hæfur til lýðræðislegrar ákvörðunartöku.

4.3 Upplýsingar eiga að vera aðgengilegar almenningi.

4.4 Upplýsingar skulu vera aðgengilegar á opnum gagnasniðum, á því formi sem er hentugast upp á notagildi upplýsinganna.

4.5 Til að einstaklingur geti borið ábyrgð þarf hann að hafa getu til að taka ákvarðanir.

4.6 Píratar telja að allir hafi óskoraðan rétt til aðkomu að ákvörðunum sem varða eigin málefni, og rétt til vitneskju um það hvernig slíkar ákvarðanir hafi verið teknar.

5. Upplýsinga- og tjáningarfrelsi

5.1 Takmörkun á frelsi fólks til að safna og miðla upplýsingum er óásættanleg, nema til verndar borgararéttindum einstaklinga.

5.2 Takmörkun á frelsi fólks til að tjá sig er óásættanleg, nema til verndar borgararéttindum einstaklinga.

6. Beint lýðræði og sjálfsákvörðunarréttur

6.1 Píratar telja að allir hafi rétt til að koma að ákvarðanatöku um málefni sem varða þá.

6.2 Réttur er tryggður með styrkingu beins lýðræðis og eflingu gegnsærrar stjórnsýslu.

6.3 Píratar telja að draga þurfi úr miðstýringu valds á öllum sviðum og efla þurfi beint lýðræði í þeim formum sem bjóðast.

==================
Að ofan má finna grunnstefnu Pírata. Stefnan er skrifuð sem röð fullyrðinga svo auðvelt sé að vísa til þeirra, en stundum er getur verið ögn snúið að skilja hvað er átt við. Hér eru nokkrar orðskýringar:
==================